Horfur
Marel hefur endurskoðað markmið um EBIT framlegð í 14-16% í lok árs 2023 í stað 16% áður, í ljósi umróts í aðfangakeðjum og alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Marel stendur að öðru leyti við vaxtarmarkmið sín til meðallangs- og langs tíma. Marel stefnir að um 40% framlegð (e. gross profit), 18% sölu-, markaðs- og stjórnunarkostnaði og 6% þróunarkostnaði, fyrir árslok 2023.
Markaðsaðstæður eru áfram krefjandi í ljósi áskorana tengdum aðfangakeðju og hárrar verðbólgu sem hafa leitt til óhagkvæmni í framleiðslu og þjónustu og hærri kostnaðar vegna afhendinga. Á síðari helmingi ársins, gerir Marel ráð fyrir auknum tekjum og bættri rekstrarafkomu með sterkri stöðu pantanabókar og virkri verðstýringu á vörum sem mun leiða til betri kostnaðarþekju á nýjum pöntunum. Marel hefur merkt aukna spurn eftir hátækni- og hugbúnaðarlausnum og þjónustu í matvælaiðnaðinum þar sem aukin áhersla er á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir við framleiðslu, og tryggja þannig örugg matvæli sem unnin eru á sjálfbæran hátt.
Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.
- Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
- Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
- Á undanförnum fimm árum hefur vöxtur markaða verið undir lengri tíma markaðsvexti. Gert er ráð fyrir að vöxtur á fimm ára tímabili (2021-2026) verði 6-8% í ljósi uppsafnaðrar fjárfestingarþarfar og hröðun eftirspurnar í kjölfar heimsfaraldurs.
- Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.
- Marel gerir ráð fyrir að stöðugar tekjur frá þjónustu, varahlutum og hugbúnaði muni nema um 50% af heildartekjum félagsins í árslok 2026.
Áætlaður vöxtur er háður hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og því má gera ráð fyrir að hann verði ekki línulegur. Reikna má með breytilegri afkomu á milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.
Gert er ráð fyrir að fjárfestingar í rekstrarfjármunum, að frátöldum nýsköpunarverkefnum, muni aukast í að meðaltali 4-5% af tekjum á tímabilinu 2021-2026, en fari svo aftur í eðlilegra horf.
Afkomuefni
Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar sem er í viðhengi. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum
Fimmtudaginn 28. júlí 2022 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.
Fundinum verður vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:
- IS: +354 800 7437 (PIN 65276904#)
- NL: +31 10 712 9162
- UK: +44 33 3300 9034
- US: +1 631 913 1422 (PIN 65276904#)
Fjárhagsdagatal
- 3F 2022 – 2. nóvember 2022
- 4F 2022 – 8. febrúar 2023
- AGM – 22. mars 2023
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa 7.000+ manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.