Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:
Fjárhagsdagatal 2020
16 Dec 2019
Fjárhagsdagatal
| 4F 2019 | 5. febrúar 2020 | Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 6. febrúar 2020 | ||
| AGM | 18. mars 2020 | Aðalfundur Marel | ||
| 1F 2020 | 20. apríl 2020 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 21. apríl 2020 | ||
| 2F 2020 | 22. júlí 2020 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 23. júlí 2020 | ||
| 3F 2020 | 20. október 2020 | Árshlutauppgjör. Fjárfestafundur 21. október 2020 | ||
| 4F 2020 | 3. febrúar 2021 | Árshluta- og ársuppgjör. Fjárfestafundur 4. febrúar 2021 | ||
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Fjárfestafundir og vefvarp
Fjárfestum og öðrum markaðsaðilum er boðið á fjárfestafundi sem haldnir eru ársfjórðungslega. Fundirnir fara fram á ensku og verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast en upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundi. Markaðsaðilum gefst einnig tækifæri til að hringja inn á fundina.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatenglar Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 6.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2018 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, en í júní 2019 fór fram tvíhliða skráning á 15% hlutabréfa í félaginu í Euronext kauphöllinni í Amsterdam.
Get in touch
Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you