Framboðsfrestur til stjórnar Marel hf. rann út kl. 16:00 þann 3. mars 2021. Rafrænn aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 17. mars kl. 16:00.
Framboð til stjórnar, endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar 2021
10 Mar 2021
Eftirtaldir sjö aðilar gefa kost á sér til setu í stjórn Marel:
Ann Elizabeth Savage, Spalding, Englandi
Arnar Þór Másson, Reykjavík
Ástvaldur Jóhannsson, Seltjarnarnesi
Lillie Li Valeur, Vejle, Danmörku
Dr. Ólafur Guðmundsson, Princeton, New Jersey, Bandaríkjunum
Dr. Svafa Grönfeldt, Boston, Bandaríkjunum
Ton van der Laan, Berlicum, Hollandi
Frekari upplýsingar um framangreinda aðila má finna í viðhengi og eru einnig aðgengilegar á upplýsingasíðu aðalfundar 2021 á heimasíðu félagsins: marel.com/agm
Samkvæmt samþykktum Marel kýs aðalfundur árlega 5-7 menn í stjórn félagsins. Stjórn Marel leggur til að kosnir verði sjö stjórnarmenn fyrir komandi starfsár.
Frestur til að skila inn tillögum er liðinn, sbr. grein 4.21 í samþykktum félagsins.
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar til fundarins eru í viðhengi.
Marel AGM 2021 Endanleg Dagskra Og TillogurGet in touch
Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you