Í viku 1 keypti Marel hf. 851.112 eigin hluti að kaupverði 314.603.842 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:
Reglubundin tilkynning um kaup á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
04 Jan 2019
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
| 2.1.2019 2.1.2019 2.1.2019 2.1.2019 2.1.2019 3.1.2019 4.1.2019 4.1.2019 |
09:32:42 12:58:08 12:58:36 12:58:50 13:29:42 09:37:18 09:48:25 09:51:00 |
100.000 63.745 19.959 77.541 22.459 283.704 282.704 1.000 |
368,00 370,00 371,00 371,00 373,50 374,00 365,00 365,00 |
36.800.000 23.585.650 7.404.789 28.767.711 8.388.436 106.105.296 103.186.960 365.000 |
| Samtals | 851.112 | 314.603.842 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. desember 2018 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Marel hf., þann 22. nóvember 2018.
Marel hf. átti 10.762.406 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 11.613.518 eigin hluti eða sem nemur 1,70% af útgefnum hlutum í félaginu.
Marel hf. hefur keypt samtals 4.922.968 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,72% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 1.865.044.969 kr.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.305.940 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 4. desember 2018 til og með 5. mars 2019.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Fjárfestatengsl:
Nánari upplýsingar veita Tinna Molphy og Marinó Þór Jakobsson í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563-8001.
Get in touch
Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you